Fylgdu okkur á TikTok! @www.lokkarogskart.is



Terms of service

Almennt
Allar upplýsingar á vef Lokkar og Skart – www.lokkarogskart.is, þ.m.t. verð eru birtar með fyrirvara um villur. Lokkar og Skart – www.lokkarogskart.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta verði eða afhendingartíma, sem og hætta sölu á vöru fyrirvaralaust.

Greiðslufyrirkomulag: 

Hægt er að greiða með millifærslu.

Þegar greitt er með millifærslu er nauðsynlegt að heildarupphæðin sé greidd inn á reikninginn sem gefinn er upp innan klukkustundar frá því að pöntunin er staðfest, annars fellur hún niður og við getum ekki ábyrgst að hægt sé að afgreiða hana. Einnig biðjum við að nafn greiðanda sé sett í "skilaboð til sendanda" dálkinn þegar pöntunin er skráð ef greiðandi er annar en viðtakandi pöntunarinnar.



Vörur: 

Við leggjum okkur fram við að sýna allar vörurnar okkar í réttum litum, en það er hinsvegar útilokað að ábyrgjast að vörurnar birtist eins hjá öllum vegna mismunandi birtu- og litastillinga á tölvuskjám.

Ef svo ólíklega vill til að vara reynist gölluð er best að hafa samband við okkur sem fyrst og við útvegum nýja vöru eins fljótt og mögulegt er.

 

Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.